Frumsýning á Ŝkoda Yeti 4x4 
5/8/2010
Nýr Ŝkoda Yeti jepplingur frumsýndur - einnig nýr Superb og ný Octavia
Laugardaginn 8. maí, kynnir HEKLA hf. nýjan jeppling, Ŝkoda Yeti. Þetta er fyrsti jepplingurinn sem Ŝkoda setur á markað en fjórhjóladrifnir fólksbílar hafa fyrir löngu sannað ágæti sitt við íslenskar aðstæður.

Ŝkoda Yeti er útbúinn aflmikilli en sparneytinni 140 hestafla dísilvél og er fáanlegur beinskiptur eða sjálfskiptur.  Ríkulegur staðalbúnaður er í bílnum og ítrustu öryggiskröfum fylgt. Sem dæmi eru í nýjum Yeti loftpúðar sem eru sérstaklega ætlaðir til að verja hné ökumanns og farþega í framsæti. 

Á sama tíma verða frumsýndar tvær aðrar bifreiðar frá Ŝkoda. Ŝkoda Superb er algjörlega nýr bíll á nýjum grunni. Meðal nýjunga má nefna tvískiptan afturhlera sem gerir bílinn að hlaðbak eða stallbak, allt eftir því hvernig afturhlerinn er opnaður sem býður upp á fjölbreytileika við hleðslu og affermingu farangurs. Loks verður ný Octavia kynnt en Ŝkoda Octavia hefur síðustu árin verið einn mest seldi fólksbíll á Íslandi.

Þjónustuverkstæði Ŝkoda verður opið viðskiptavinum á sama tíma og Ŝkoda eigendum boðið upp á ókeypis ásstandsskoðun, sem felur m.a. í sér prófun á hemla- og demparabúnaði bifreiðarinnar. Loks verður Ŝkoda eigendum boðið upp á þrif á bíl sínum að utan meðan á sýningunni stendur.

Sýningin verður opin frá kl. 12-16 í sýningarsal Ŝkoda að Laugavegi 172 og eru allir Skoda eigendur og unnendur Ŝkoda bifreiða sérstaklega velkomnir.

5/10/2012
Hinn árlegi Skoda dagur verður haldinn n.k. laugardag, 12 maí frá kl. 12-16. Þar geta hinir fjölmörgu Skodaeigendur átt glaðan dag hérna í HEKLU. 
1/20/2011
Frumsýnum nýja Škoda Fabia um helgina. Meira fjör - minni eyðsla.
6/16/2010
Lögreglustjórinn á Eskifirði hefur tekið í notkun nýjan Skoda Scout 4x4.