ÁST VIÐ FYRSTA AKSTUR
Það er sérlega ánægjulegt að kynna aðra kynslóð Fabia. Fabia er ein söluhæsta gerðin í sögu Skoda. Ný Fabia mun án efa vekja upp enn jákvæðari tilfinningar og ánægjulegri upplifun en forverinn.
    Framljós með þokulýsingu og “beygjuvirkni” eru í fyrsta sinn fáanleg í Fabia. Þau auka sýn fram á veginn, ekki síst þegar verið er að leggja bílnum og ekið er á hægri ferð, (allt að 40 km/klst).

    Að utan

    Ný Fabia er lengri, (3.992 mm), og hærri, (1.498 mm), en eldri gerðin. Þar með er hann líka aftur orðinn stærsti valkosturinn í sínum stærðarflokki. Af kraftmiklum og stoltum framenda bílsins má strax sjá að hann er stolt afkvæmi Škoda fjölskyldunnar og náskyldur Roomster, sem deilir flestum íhlutum með Fabia, allt frá frumlegum framljósumunum að aurhlífunum. 

    Kraftaleg hliðarlína bílsins er sömuleiðis ný hönnun, þar á meðal hliðargluggar og dekktir A- og B-hurðarpóstar og afturhluti með sérstaklega formuðum afturljósum sem ná alveg út á hliðar bílsins.

    Ennfremur tókst hönnuðum að draga loftmótstöðu bílsins niður í mjög ásættanlegt hlutfall sem er 0,33. Fyrir utan minni vindhljóð leiðir minni loftmótstaða til þess að eldsneytiseyðsla dregst einnig saman. Með skynjurunum í afturstuðara á ökumaður ekki í vandræðum með að leggja bílnum í þröng bílastæði, (aukabúnaður).

     

    Að innan

    Innanrýmið er gerbreytt miðað við fyrstu kynslóð Fabia. Betra skipulag í mælaborði og úthugsuð staðsetning á stjórntækjum auka verulega þægindi ökumanns. Fáanlegar eru tvær útfærslur á innanrými með þrenns konar litasamsetningum.
     
    Meira rými er fyrir aftursætisfarþega – bæði fótarými og höfuðrými, þökk sé meiri þakhæð bílsins. Fjöldi geymsluhólfa kemur líka í góðar þarfir. Farangursrýmið hefur stækkað í 300 lítra, og ef aftursætisbökin eru felld niður myndast 1.163 lítra rými fyrir farangurinn.
     
    Nýjar klæðningar og sætisáklæði stuðla að þægilegra og notalegra andrúmslofti inni í bílnum. Fáanlegar eru átta mismunandi klæðningar – en ekki þarf að óttast að valkvíðinn verði óleysanlegt vandamál!