Framfarir í tæknibúnaði
Tæknibúnaðurinn í nýrri Octavia er meðal þess besta sem þekkist í nútíma bifreiðum. Í Octavia eru nú fáanlegar fimm gerðir bensínhreyfla og þrjár gerðir dísilhreyfla ásamt úrvali handskiptra og sjálfskiptra gírkassa. Þar á meðal er hin byltingarkennda, 7 gíra sjálfskipting (DGS), sem er sérstaklega hönnuð fyrir 1.4 lítra 122 ha. og 1.8 lítra, 160 ha. bensínhreyflana með strokkinnsprautun.
Hreyflarnir í nýrri Octavia ná yfir mikið svið slagrýmis og afkasta, til þess að fullnægja kröfum viðskiptavina með mismunandi þarfir. Bensínhreyflarnir eru allt frá 1.4 lítra, 80 ha. með fjölinnsprautun og til hins öflugasta, sem er 2.0 lítra, 200 ha. með strokkinnsprautun. Í boði eru einnig dísilhreyflar, meðal annars 105 og 140 hö. með forþjöppu og hins vegar 2.0 lítra 170 hö. með forþjöppu og samrásarinnsprautun.