Í veröld Roomsters er allt með öðrum hætti. Ökumaður og farþegar skynja umhverfið á annan hátt og finna nýtt sjónarhorn. Þú mun njóta einstakra þæginda inni í bílnum. Roomster uppfyllir allar þínar þarfir og hefur upp á mikið innanrými að bjóða.
Gírstöngin hefur frumlega lögun og hún fellur vel í hendi. Óvenjulegt útlit hennar vekur meira að segja eftirtekt farþeganna og ánægju bílstjórans með nákvæmum og auðveldum gírskiptingum.

Að utan

Roomster er bíll til daglegra nota en aðgreinir sig um leið frá fjöldanum með einstæðum persónuleika sínum. Allt við bílinn dregur að sér athygli, hvort sem það er frumleg lögun framljósanna, stór framrúðan, fram- og afturdyrnar, stór sóllúgan eða afturljósasamstæðan. Strax við fyrstu sýn blasir þetta við.

Aðrir ómótstæðilegir kostir koma síðan fljótt í ljós við notkun bílsins, eins og til dæmis þokuljós með “beygjuvirkni” og framljós með snúningskerfi. Það á örugglega eftir að koma þér þægilega á óvart að sjá beygjurnar lýsast upp áður en þær eru teknar.

Að innan

Mikið rými, fjölhæfni, notagildi og þægilegt andrúmsloft einkennir innanrýmið. Þessa kosti og marga aðra til viðbótar er að finna bæði í “stjórnrýminu”, undir stýri, og “íverustaðnum” að aftan.
 
Mikil þægindi, geymslurými, Varioflex-sætakerfi með mörgum stillingum, stór sóllúga, nútímalegt mælaborð og plássmikið farangursrými gera Roomster að hinum ákjósanlega farkosti jafnt í ferðalögunum og í annríki hversdagsins.