Bílarnir okkar eru fallegir, hafa góða aksturseiginleika og eru áreiðanlegir. Viðurkenningar sem þeim hafa hlotnast staðfesta þetta. Þar til viðbótar gengur rekstur Skoda einnig vel.

    Bestu bílarnir 2007

    Skoda bílarnir stóðu sig vel í tékkneskum hluta stærstu lesendakönnunar í Evrópu yfir Bestu bílana 2007 að teknu tilliti til verðs. Octavia var kjörinn besti bíllinn á verði allt að 650.000 CZK, Superb í flokki bíla á verði allt að 1.000.000 CZK og Roomster vann í flokki rýmisbíla.

    Framkvæmdastjóri ársins 2006

    Detlef Wittig, fyrrum stjórnarformaður Skoda Auto, var kjörinn Framkvæmdastjóri ársins 2006. Þetta var í fjórtánda sinn sem þessi eftirsóttu verðlaun voru veitt þar stjórnendum í tékknesku atvinnulífi eru veittar viðurkenningar fyrir hæfni og framsýni.

    Bíll ársins 2007

    Nýjasta gerð Skoda, önnur kynslóð Fabia hlaðbaksins, var valin Bíll ársins 2007 í Serbíu. Hefð er fyrir því að veita þessi verðlaun um það leyti sem bílasýningin í Belgrad opnar. Roomster var ennfremur valinn Bíll ársins í Eistlandi, Finnlandi og Búlgaríu. 

    Fjölskyldubíll ársins 2006 - 2007

    Roomster stóð uppi sem sigurvegari í keppni um Fjölskyldubíl ársins. Roomster hlaut þessi verðlaun í Belgíu árið 2006 og endurtók svo leikinn í Svíþjóð 2007.  

    Laglegasti bíll í heimi 2006

    Þýska bílatímaritið Auto Bild stóð fyrir keppni um Laglegasta bíl í heimi árið 2006. Skoda Roomster hafnaði í þriðja sæti í flokki fjölnotabíla og stórra bíla.

    Red Dot 2006

    Octavia Combi hlaut hin eftirsóttu evrópsku verðlaun Red dot 2006. 

    Auto Trophy 2006

    2006 hlaut Skoda Roomster Auto Trophy verðlaunin í flokki fjölnotabíla. 

    1. sæti í topp 100 (2000 – 2006)

    Allt frá árinu 2000 höfum við trónað á toppi 100 í Tékklandi, sex ár í röð.

    Útflutningsfyrirtæki Tékklands (1993 – 2006)

    Við urðum Útflutningsfyrirtæki ársins fjórtán ár í röð hvað útflutningsmagn varðar, sem gerir okkur að stærsta útflutningsfyrirtæki Tékklands hvers árs.