UCI – Pro Tour er keppnisröð þeirra allra fremstu í íþróttinni. Keppnisröðin stendur yfir frá mars til október á ári hverju og felur í sér hörðustu og mest spennandi keppnir stærstu keppnisliðanna og fremstu hjólreiðamanna hvaðanæva úr heiminum, jafnt einstaklinga, liða og jafnvel landsliða, sem berjast til síðasta blóðdropa um sigurinn.Hjólreiðakeppnir gera gríðarlegar kröfur til keppenda en ekki síður til þeirra sem annast tækni- og skipulagsmál liðanna allan þann tíma sem keppnistímabilið stendur yfir. Skoda Auto er núna bakhjarl níu af tuttugu keppnisliðum sem taka þátt í Pro Tour keppnisröðinni.
» Crédit Agricole» Gerolsteiner» Discovery Channel » Euskaltel - Euskadi» Team Milram» Astana» Predictor-Lotto» Team CSC» Rabobank
Skoda er ennfremur bakhjarl hinnar velþekktu vegaaðstoðar sem veitt er í hjólreiðakeppnum og er betur þekkt undir nöfnum Mavic, Shimano og FSA. Þar sem þessir aðilar þurfa að bregðast skjótt við verða þeir að geta treyst á bílana sem þeir nota. Þess vegna leggja þeir allt sitt traust á áreiðanleika Skoda bifreiða.