Skoda - bakhjarl alþjóða hjólreiðasambandsins


Skoda Auto er ennfremur opinber stuðningsaðili Alþjóða hjólreiðasambandsins (UCI) og þar með aðalbakhjarl heimsmeistaramótsins í götuhjólreiðum, sem er einn stærsti íþróttaviðburður heims.

Með samstarfi og virkum stuðningi Skoda við keppnisliðin hefur fyrirtækið öðlast betri skilning á þörfum og óskum viðskiptavina sinna og áhugamanna um hjólreiðar, sem sækjast eftir skynsamlegum lausnum sem uppfylla daglegar samgönguþarfir á nútímalegan hátt.

 

Heimsmeistaramót í götuhjólreiðum 2007

Keppnin var haldin á síðasta ári í Stuttgart í suðurhluta Þýskalands frá 26. til 30. september. Keppnisleiðirnar voru jafnt á strætum borgarinnar og í fögru umhverfi hennar. Þetta var í annað sinn sem Heimsmeistaramótið í götuhjólreiðum var haldið í Stuttgart. Þarna var um að ræða íþróttaviðburð af stærstu gerð með faglegri skipulagningu á öllum sviðum.