Það er löng hefð fyrir tengslum á milli Skoda vörumerkisins og ísknattleiks. Við höfum verið aðalbakhjarlar Heimsmeistaramótsins í ísknattleik síðan 1992 og verðum það áfram að minnsta kosti til ársins 2011. Þetta er langlífasta samstarf sem þekkist í sögu heimsmeistaramóta í íþróttum. 

    Við sjáum þessari einstæðu ísknattleikskeppni fyrir flota af Skoda bifreiðum, sem skipuleggjendur mótsins nota til að koma þátttakendum á milli staða meðan á keppni stendur.

    Meðan á kappleikjum stendur eru bílar okkar til sýnis í hornum leikvanganna. Miðjuhringir keppnisvallanna skarta vörumerki Skoda og á auglýsingaspjöldum umhverfis keppnisvellina eru auglýsingar Skoda. Árið 2004 náðum við til um 701 milljónar áhorfenda sem fylgdust með Heimsmeistaramótinu í ísknattleik í sjónvarpsútsendingum til yfir 50 landa út um allan heim.

    Á heimaslóðum í Tékklandi tengist Skoda í hlutverki sínu sem aðalbakhjarl tékkneska landsliðsins í ísknattleik og efstu deildinni órjúfanlegum böndum.