Í meira en 100 ár hafa akstursíþróttir verið stór þáttur í sögu Skoda merkisins. Það er því verulega áskorun fyrir Michal Hrabának, yfirmann akstursíþróttadeildar Skoda Auto, að tryggja áframhaldandi velgengni á þessu sviði.
Meginverkefni deildarinnar er einkum og sér í lagi að þróa nýjan bíl til keppni auk þess að vinna að framtíðaráformum Skoda merkisins í akstursíþróttum. Nýi keppnisbíllinn, Fabia Super 2000, mun halda uppi merki og velgengni Skoda Auto í akstursíþróttum. Frumgerðir bílsins voru kynntar á bílasýningunni í Genf 2007.
Undir stjórn Jan Kopecký lauk skeiði Fabia WRC og þar með þeim kafla í sögu Skoda Auto sem snerist um WRC keppnisbíla.