Hjólreiðar

Ein af grunnstoðunum í uppbyggingu vörumerkisins er stuðningur við mikilvæga, alþjóðlega íþróttaviðburði. Allt frá árinu 2004 hefur stuðningur við hjólreiðakeppnir verið ein af grunnstoðum Skoda Auto. Síðan þá er Skoda orðinn mikilvægur þátttakandi í þekktustu hjólreiðakeppni heims, Tour de France, sem og Giro d‘Italia, Tour de Swisse, Deutschlandtour, og öðrum þekktum hjólreiðakeppnum sem haldnar eru að vori og hausti. Í október 2007 endurnýjaði Skoda samstarfssamning sinn við Tour de France til fjögurra ára, allt fram til ársins 2011. 

Hluti af samstarfinu felst í því að Skoda útvegar stóran bílaflota af Fabia, Octavia, Superb og Roomster fyrir keppnina. Þar með sér Skoda um samgöngur fyrir yfirstjórnendur keppninnar sem og alla liðsstjórnendur, samstarfsaðila þeirra og fulltrúa fjölmiðla.

Skoda Auto er bakhjarl hvítu treyjunnar, sem hlotnast hjólreiðakappa undir 25 ára aldri, sem þykir skara fram úr öðrum.