Fyrsti háskóli atvinnulífsins í Tékklandi

    Skoda Auto háskólinn var stofnaður árið 2000 og er fyrsti háskólinn sem rekinn er af fyrirtæki í Tékklandi. Skoda Auto háskólinn er einkaskóli. 

    Námsframboð

    Faglegt grunnnám – menntun á sviði fyrirtækjahagfræði og viðskiptafræði og fyrirtækjahagfræði og rekstrarstjórnun, bæði í fullu námi og námi með vinnu. 
     
    Meistaranám – kennsla á þessu námssviði hófst á skólaárinu 2006/2007. Námið snýst um alþjóðaviðskipti og fjármálastjórnun fyrirtækja, alþjóðaviðskipti og markaðsfræði, og fjármálastjórnun fyrirtækja og rekstrarstjórnun.

    Grunnnám í Skoda Auto háskólanum er í 3,5 ár, (7 annir), og framhaldsnám til meistaragráðu tekur tvö ár, (4 annir). Um þessar mundir stunda yfir 560 nemendur nám í háskólanum, annað hvort í fullu námi eða námi með vinnu.

    Verkmenntaskóli

    Sérfræðingar Skoda Auto við verkmenntaskóla fyrirtækisins taka á móti þeim sem útskrifast úr grunnskólum og leiðbeina þeim í fjögurra ára bóknámi og þriggja ára lærlingssamningi í verkfræði- og raftæknigreinum.

    Sérfræðingar á ellefu sviðum

    Uppbygging bóknámsins og iðnnámsins, og fjöldi nemenda á hverju sviði, ræðst af þörfum og óskum bílaframleiðandans hverju sinni. Á skólaárinu 2006/2007 voru samtals 937 nemendur í undirbúningi fyrir sín framtíðarstörf á alls ellefu sviðum.

    Námskostnaður, (skólagjöld, menntastyrkir, vinnuföt og skófatnaður) er alfarið greiddur af Skoda Auto. Nemendur sem búa fjarri skólanum hafa aðgang að heimavist með 130 rúmum.

    Viðburðir utan skóla

    Þeir nemendur sem skara fram úr eru verðlaunaðir með þátttöku í skiptinemasamskiptum, (við Þýskaland og Bretland), ferðalögum sem miða að því að efla tungumálakunnáttu, (til Þýskalands og Austurríkis) og með þjálfun í erlendum tungumálum.

    Að loknum skóladegi geta nemendur valið að stunda fjölmargar greinar íþrótta eða notið annarra áhugaverðra frístunda undir leiðsögn sérfræðinga – þ.e.a.s. lyftingar, sund, vatnaíþróttir, íþróttaleiki, keiluspil, innanhúsknattspyrnu, hjólreiðar, borðtennis, skotfimi, körfubolta eða blak.