JAFNVÆGI Á MILLI 
EFNAHAGS-, UMHVERFIS-,
OG FÉLAGSLEGRA ÞÁTTA!

Hlekkir

» Þjónusta

 

    Skoda Auto hefur sett á laggirnar langtíma áætlun sem miðar að því að draga úr afleiðingum starfseminnar á umhverfið. Eitt af forgangsmálunum er að viðhalda jafnvægi milli efnahags-, umhverfis- og félagslegra þátta en slíkt jafnvægi er undirstaða sjálfbærrar þróunar.

    Þjónusta og vistfræði

    Aðgerðir Skoda Auto í umhverfismálum einskorðast ekki við eigin framleiðslu og framleiðslustarfsemi. Órjúfanlegur hluti af hugmyndafræðinni snýst um að bæta umhverfið. Þess vegna fylgist fyrirtækið einnig grannt með afstöðu viðurkenndra söluaðila Skoda til umhverfismála.

    Viðurkenndir söluaðilar Skoda njóta nú fullkominnar ráðgjafarþjónustu á sviði umhverfisverndar sem tryggir þeim óslitið streymi upplýsinga um meðferð úrgangs, vatnsvernd, verndun andrúmsloftsins og meðferð hættulegra efna.

     

     

    Í gegnum dreifingarnet okkar tryggjum við að notuðum hlutum eins og rafhlöðum, hjólbörðum og úrgangsolíu er safnað saman í samræmi við lög.  Í gegnum viðurkennt net endurvinnslustöðva okkar tryggjum við ennfremur að í lok líftíma bílanna er þeim safnað saman og þeir endurnýttir.