Þrátt fyrir mikið innanrými fellur Fabia Combi ekki í flokk vinnubíla heldur er hann fjölhæfur bíll með mikið notkunargildi. Fjölhæfni hans gerir hann að þægilegum bíl til daglegra nota. Hann uppfyllir margvíslegar óskir ökumannsins og er jafnframt kjörinn til flutninga af ýmsu tagi. Um leið er hann þægilegur fjölskyldubíll.Mikið innanrými er auðvitað forsendan fyrir því að bíll geti talist þægilegur. En mörg önnur atriði eiga sinn þátt í að gera bíl enn þægilegri. Við höfum lagt okkur í framkróka um að þú getir notið allra uppáhalds tækjanna þinna þegar þú ert undir stýri; tækja eins og til dæmis iPod, farsímans eða leiðsögukerfis.