Your browser does not support this object. Please install Flash Player plugin from http://www.adobe.com.

       Ytri mál:

       - Lengd (mm): 4239
       - Breidd (mm): 1642
       - Hæð (mm): 1498*
       - Veghæð (mm): 135*
       - Hjólhaf (mm): 2462


       Innri mál:
 
       - Olnbogarými í fram-/afturs. (mm): 1380/1383
       - Höfuðrými í fram-/afturs. (mm): 989/994
       - Farangursrými hámark/lágmark (l): 480/1460

                                                                                         
*)   Miðað við eigin þyngd

    Vélar

    Valið stendur um þrjár bensínvélar og þrjár díselvélar, með afköstum frá  70 hestöflum til 103 hestafla. 

    1,6 16V/103 hestafla bensínvélin gefur Fabia Combi hámarksviðbragð og afl, jafnvel þegar bíllinn er fullhlaðinn. Þeir sem kjósa sparneytnari vél eiga kost á 70 hestafla eða 85 hestafla bensínvélum. 

    Dísilvélarnar þrjár (70, 80, 103 hestafla) eru afar sparneytnar en um leið þýðgengar og togmiklar. 80 og 103 hestafla vélarnar eru boðnar með sótagnasíum. 


    Gírkassar

    Önnur af tveimur gerðum fimm gíra, handskiptra gírkassa fylgir vélunum og það ræðst af afköstum vélanna hvor gírkassinn fylgir.

    Það sem einkennir báða gírkassa eru stuttar, nákvæmar og auðveldar skiptingar. Lítið sem ekkert vélarhljóð eða titringur berst inn í farþegarýmið. 

    Sex þrepa sjálfskipting fylgir aflmestu bensínvélinni, 1,6 lítra, 16 ventla, 103 hestafla. Hún er jafnframt með Tiptronic handskiptivali. 

    Farangursrými

    Í staðalgerð Fabia Combi er óvenju mikið farangursrými. 

    Jafnvel með fimm manns í bílnum er til ráðstöfunar 480 lítra rými fyrir farangurinn.  Svo mikið farangursrými er óvenjulegt í bíl í þessum stærðarflokki og í raun sambærilegt við bíla í efri stærðarflokkum.

    Aftursætin eru niðurfellanleg, (í hlutföllunum 60:40), sem auðveldar breytta uppröðun í innanrými bílsins sem ræðst af þörfum hverju sinni. Með því að fella niður öll aftursætin myndast 1.460 lítra geymslurými.