Your browser does not support this object. Please install Flash Player plugin from http://www.adobe.com.

Nýr Skoda Fabia Combi á eftir að fanga athygli þína frá fyrstu kynnum með samræmi í formum og smáatriðum sem undirstrika klassíska hönnun þessarar nýju kynslóðar, vinsælustu gerðar Skoda.

Farþegar upplifa jafnvel enn meiri þægindi í nýja bílnum og ennfremur meira farangursrými en í forveranum. Farangursrýmið er 45 lítrum stærra og tekur nú alls 480 lítra. Með aftursætin niðurfelld og slétt að gólfi er farangursrýmið alls 1.460 lítrar, 235 lítrum meira en í fyrri gerð.

 

 Hlekkir

» Skoda Fabia örvefur 

Niðurhal

» Skoda Fabia verðlisti 
 


    Afturljósasamstæðan myndar “C”-laga lýsingu sem er dæmigerð fyrir allar gerðir  Škoda. Afturljósin ná að hluta til inn á hliðar bílsins sem bæði undirstrikar glæsileika bílsins og gerir hann auðþekkjanlegan úr fjarlægð.

    Ytri mál

    Í samanburði við fyrri gerð er ný Fabia stærri í ytri málum. Nýr Fabia Combi er 7 mm lengri og 46 mm hærri. Lengd: 4.239 mm; breidd: 1,642 mm og hæð: 1.498 mm.

    Eins og heildarútlit bílsins byggja öll smáatriði í ytri hönnun á auðþekkjanlegu formi hans. Lögun á þaki og hliðargluggum gefa bílnum straumlínulagað útlit og það ásamt dökkum hurðapóstum gefa honum kraftalegt yfirbragð.

    Sérstakt útlit á framljósunum leggur sitt af mörkum til þess að ásjóna bílsins sýnist vingjarnleg. Vatnskassahlífin byggir á klassískri hönnun. Hún er með láréttum rimum og merki Skoda.

     

     

     

     

    Innanrými

    Nýr Fabia er líka gerbreyttur að innan. Allt gengur út á þægilega uppröðun í mælaborðinu. Umhverfi ökumannsins er því skipulagt í þeim tilgangi að gera það sem allra þægilegast, öruggast og notendavænst. 

    Lykilatriði í hönnun innanrýmisins er mikið pláss fyrir farþega í aftursætum, fjöldi geymsluskúffa og –hirslna og notkun hágæðaefna í innanrýminu.

    Farþegi í framsæti hefur aðgang að geymsluhólfum af ýmsum stærðum og gerðum, opnum og með loki, allt eftir búnaðarútfærslum. Læsanlegt neðra hanskahólfið gegnir hlutverki lítils kæliskáps í þeim gerðum sem eru með loftfrískunarbúnaði.