Við finnum öll til vissrar öryggistilfinningar við mismunandi aðstæður. Einmitt þess vegna bjóðum við upp á viðbótar öryggisbúnað eftir þörfum hvers og eins. Eins og í hlaðbaksútfærslum Fabia hefur Škoda Auto útbúið nýja Fabia skutbílinn með miklum öryggisbúnaði. Margvíslegur og nútímalegur öryggisbúnaður bílsins ver ekki aðeins farþegana heldur líka aðra vegfarendur úti í umferðinni.
Við bjóðum upp á margvíslegan öryggisbúnað í nýjan Fabia Combi. Njóttu þess besta í nýjum Škoda Fabia Combi, eins og til dæmis spólvarnarkerfis, (ASR), rafeindastýrðrar mismunadrifslæsingar, (EDS), sem tengist sjálfkrafa rafeindastýrðri stöðugleikastýringu, (ESP), tvívirkrar hemlunaraðstoðar, loftþrýstingsnema fyrir hjólbarða, (TPM), sem virka í tengslum við ABS skynjarana, bílastæðavara, þriðja hnakkapúðans í aftursætum, hliðaröryggispúða og loftpúðagardína og fjölmargra annarra þátta sem auka öryggistilfinningu þína.
Í aftursætum eru festingar fyrir barnabílstóla. Nýr Fabia langbakur fer líka létt með að uppfylla kröfur sem gerðar eru til verndar gangandi vegfarendum. Vélarhlíf og framstuðari gefa eftir og gleypa í sig högg ef til áreksturs kemur. Þar með dregur úr hættu á meiðslum á gangandi vegfarendum.
Öryggispúðar fyrir ökumann og farþega í framsæti og hliðaröryggispúðar eru grunnbúnaður hvað öryggi varðar í nýjum Škoda Fabia Combi.