Öryggi – á því sviði er málamiðlun ekki í boði 
Hækkaður staðall á sviði fyrirbyggjandi og meðvirks öryggis er stöðugt forgangsverkefni við framleiðslu okkar bíla. Það á bæði við um farþegana og aðra vegfarendur og til þess að ná því takmarki er ekkert gefið eftir og allri tiltækri tækni beitt.

Þetta kemur áþreifanlega í ljós með stöðugleikastýringunni, sem fáanleg er í Octavia, en sá búnaður felur m.a. í sér hemlalæsivörn, spólvörn, mismunadrifslæsingu, spyrnustýringu og rafræna dreifingu hemlunarkrafta. Auk þess er meðvirkur öryggisbúnaður, svo sem öryggispúðar fyrir ökumann og farþega í framsæti, höfuð,- hliðar- og frampúðar.

Octavia er nú búin nýrri gerð þjófavarnar með leynikóða. Öryggislýsing er neðst á framhurðum, sjálfvirkur búnaður lokar fyrir streymi eldsneytis ef umferðaróhapp hendir og hættuljósin leiftra sjálfkrafa, ef hemlað er harkalega. Allt stuðlar þetta að vernd og öryggi farþeganna.

Stöðugleikastýring (ESP)

Um er að ræða sjálfvirkan, rafrænan búnað, sem hefur afgerandi áhrif á að fyrirbyggja að umferðarslys hendi. Hluti af þessum búnaði er m.a. hemlalæsivörn, spólvörn, læsing á mismunadrifi, spyrnustýring og rafræn dreifing hemlunarkrafta á hvert veghjól.

WOKS höfuðpúðar

WOKS höfuðpúðarnir á bökum framsæta eru mikilvæg nýjung á sviði meðvirks öryggis. Hið nýja form púðanna minnkar líkur á áverkum á hálsliðum farþega í framsæti við árekstur að aftan. Þannig er stórlega dregið úr hættu á svokölluðum hálshnykk, þegar ferðast er í Octavia.

Þriggja festu öryggisbelti

Í nýrri Octavia er þriggja festu bílbelti í öllum sætum sjálfsagður staðalbúnaður. Beltin fyrir framsæti eru með hæðarstillingu á eftir festingu og forstrekkingu sem samræmd er virkni líknarbelgjanna við árekstur að framan.

Ljósabúnaður

Ljósabúnaðurinn í Octavia er gerður til að þjóna við ýmar ólíkar aðstæður. Fyrir utan að lýsa upp veginn framundan er um að ræða svokallaða umhverfislýsingu, en þá er hlaðið umhverfis heimilið sjálfkrafa lýst upp við komu og brottför, þegar skuggsýnt er orðið.