HEIMUR ÞÆGINDA


Láttu fara vel um þig. Til viðbótar við hámarks notagildi og áreiðanleika býður Roomster jafnframt upp á mikil þægindi og öryggi. Í honum er hægt að hvílast og slaka á. Þú kemur ávallt með bros á vör á áfangastað á Roomster.

Roomster býður farþegum upp á þægindi. Þannig er gengið frá hlutum að allt sem ökumaður þarfnast er innan seilingar í stjórnrýminu. Að aftan er sömuleiðis rúmgóður og notalegur íverustaður fyrir farþega.  

Ríkulegur grunn- og aukabúnaður fylgir Roomster sem gerir ferðina þægilega jafnt fyrir farþega í aftursætum sem ökumann og farþega í framsæti. Fjöldi geymsluhólfa og vasa fyrir smáhluti, skjöl, gleraugu, kort og allt að fjórum lítrum af drykkjum koma að góðum notum og auk þess er að finna notadrjúga vasa í hurðarspjöldunum.

Hálfsjálfvirkt eða alsjálfvirkt loftfrískunarkerfi viðheldur ákjósanlegu hitastigi inni í bílnum. Kerfin eiga það sameiginlegt að valda ekki umhverfinu skaða – þau eru laus við skaðleg freon-efni, veita hámarkskælingu og valda lágmarksmengun.  

Beat eða Dance hljómtækin skila tónlistinni ómengaðri til farþeganna. Dance hljómtækið spilar CD-R, CD-RW, geisladiska sem eru varðir gegn fjölföldun, og MP3. Hægt er að tengja geisladiskaskipti fyrir sex geisladiska og einnig vasasegulband og ferðageislaspilara, iPod og MP3 spilara. Hægt er að tengja síma inn á tækið, sem tekur við umferðarupplýsingum og útvarpstexta og sýnir upplýsingar á Maxi-DOT skjá í sjónlínu ökumanns.

 

Aðgerðaborð

Frábær lausn sem veitir þægilegan aðgang að hljómtækinu og mikilvægustu aðgerðum farsímans. Upplýsingar birtast í sjónlínu ökumanns á Maxi-DOT skjá.

Leiðsögukerfi

Leiðsögukerfið kemur þér örugglega á áfangastað með raddskilaboðum og myndrænum leiðbeiningum. Kerfið tekur á móti umferðarupplýsingum og velur út frá þeim hagkvæmustu. Að auki inniheldur leiðsögukerfið útvarpsmóttakara, geislaspilara, (samhæfðan fyrir MP3), og úttök fyrir geisladiskaskipti eða handfrjálsan símbúnað.

Sóllúga í fullri stærð

Fjölskyldan á eftir að kunna að meta sóllúguna sem er 1.124x729 mm að stærð. Hún á eftir að njóta ómótstæðilegs útsýnis upp í heiðbláan eða stjörnubjartan himininn. Sérstaklega styrkt, marglaga glerið er hluti af sterkri yfirbyggingu bílsins. Rennihlíf í tveimur hlutum gerir kleift að byrgja sóllúguna að hluta til. 

Varioflex

Roomster lagar sig að mismunandi þörfum án vandkvæða með Varioflex-kerfinu. Unnt er að breyta skipulagi í innanrýminu og farangursrýminu á 20 mismunandi vegu með aftursætum sem hægt er að færa til, stilla, fella niður og fjarlægja úr bílnum.