ÖRYGGI 


Roomster flytur ekki einungis farangur og pakka og pinkla heldur líka þá sem þér standa næstir. Þess vegna var öryggisbúnaður forgangsatriði við hönnun bílsins. Auk öryggispúða að framan og hliðaröryggispúða er Roomster með annan mikilvægan öryggisbúnað.

    Grunnbúnaður í öllum gerðum Roomster eru öryggispúðar fyrir ökumann og farþega í framsæti auk hliðaröryggispúða. Aftengja verður öryggispúða fyrir farþega í framsæti ef ætlunin er að koma þar fyrir barnabílstól. Til þess að hámarka öryggi ökumanns og farþega er skynsamlegt að panta bílinn með loftpúðagardínum sem ná yfir endilangar hliðar farþegarýmisins. Loftpúðagardínurnar verja jafnt farþega í framsætum og aftursætum komi til áreksturs. Og eitt skyldi aldrei gleymast! Virkni öryggispúðanna er mest þegar farþegar hafa öryggisbeltin spennt.

    Rafeindastýrð kerfi af nýjustu gerð stuðla ennfremur að öryggi allra í umferðinni. Roomster er með ABS, MSR og Dual Rate í mörgum útfærslum og ennfremur er ASR fáanlegt sem aukabúnaður.  ESP stöðugleikastýring eykur mjög öryggi í akstri í beygjum við allar aðstæður. ESP-kerfið innifelur um leið öll hin kerfin sem áður voru nefnd. 

    Þokuljós með „beygjuvirkni"

    Active headlights with “corner” functionality will recognise your intention to turn and slowly shine a fog light in the direction of the manoeuvre; it will then light up the road up to an angle of 60°! This makes turning safer, in particular from the viewpoint of possible collisions with unlit objects, pedestrians and cyclists.

    Bakkskynjari

    Hátíðniskynjarar í afturstuðara draga mjög úr allri streitu sem er samfara því að leggja bílnum í þröng bílastæði í borginni. Skynjararnir mæla vegalengd í næstu fyrirstöðu. Hljóðmerki gefur ökumanni til kynna þegar hann getur ekki ekið nær fyrirstöðu. 
     

    Loftþrýstingsskynjari

    Ennþá meira öryggi í akstri. Hægt er að fá Roomster með TPM-kerfi sem fylgist með loftþrýstingi í hjólbörðunum. TPM-kerfið fylgist stöðugt með snúningi hvers hjóls og ber hann saman við snúning annarra hjóla. Ljósmerki í mælaborðinu gefur ökumanni til kynna ef breytingar verða á snúningi eins hjóls og þar með að dregið hafi úr loftþrýstingi þess.

    Afturljós

    Lárétt uppröðun á afturljósaklasanum gerir bílinn sýnilegri öðrum vegfarendum sem um leið eykur öryggi bílstjórans og farþeganna. Afturljósaklasinn er um leið einkennismerki Skoda. Við akstur í myrkri mynda afturljósin “C”-laga form.