Nýr Škoda Yeti vekur óskipta athygli þeirra sem gera kröfur um fjölhæfan bíl, sem jafntframt er hlaðinn þægindabúnaði og ber af öðrum bílum í útliti, að utan sem innan.

Yeti er ávallt reiðubúinn þegar þú þarft að fara til og frá vinnu eða annarra skyldaustarfa, en hann er ekki síður traustur fylginautur í skemmtiferðum og til afþreyingar. Svo er fyrir að þakka rúmgóðri vistarveru fyrir farþegana og ótal hlutum til nytja og þæginda, bæði fyrir ökumann og farþega.  



Bílastæðastýring er mikil hjálparhella fyrir ökumenn í þrengslum innanbæjar. Þessi búnaður aðstoðar ökmann sjálfvirkt við að leggja bílnum við gangstétt í stæði sem ekki er nema liðlega 5 metrar á lengd. Þetta gerist í nokkrum skrefum með hreyfingu fram og aftur.



Þú getur hlustað á uppáhaldstónlistina þína í miklum gæðum í hljómflutningstækjunum. Einnig geturðu tengt MP3 spilara við tækið.

Climatronic loftfrískun

Climatronic er rafstýrður loftfrískunarbúnaður með tvö aðskilin virknisvið fyrir farþegarýmið og skynjara, sem nemur gæði andrúmsloftsins utan við bílinn og skiptir sjálfkrafa yfir á inniloft ef gæði útiloftsins uppfylla ekki settar kröfur. Þetta gerist t.d. þegar merkið er um jarðgöng eða í þéttri umferð og varir þar til komið er í hreint loft aftur. 

Sólþekja

Sóllúgan sem er rafknúin og í tveimur hlutum, nær yfir megnið af þaki bílsins eða 1364x870 mm og veitir birtu og ferskleika inn í farþegarýmið. Fremri hlutinn opnast bæði lárétt og lóðrétt og þannig er hægt að fá þægilegan straum af frískandi útilofti inn í bílinn eftir þörfum. Glerið er litað og rafknúið tjald er til að hylja sólþekjuna að innan.

Farangursrými

Hugmyndin um að hafa þrjá sjálfstæða stóla afturí skapar fjölda möguleika til nýtingar á rými. Þannig getur þú haft til ráðstöfunar rúm sem er að umfangi frá 146-1760 lítrar. Auk þessa er í farangursgeymslunni festibúnaður með slám og færanlegum lykkjum. Yeti er fyrsti bíllinn frá Skoda sem er sérhannaður fyrir fjölþætta nýtingu.

17" álfelgur

Til að nýta aksturseiginleikana sem best er hægt að fá Yeti með 17" Dolemite felgum. Þær eru gerðar úr léttmálmsblöndu, eru glitrandi fagrar og gefa bílnum eikennandi og sterkan svip. Einnig eru fáanlegar nýjar 16" álfelgur af gerðinni Moon og hinar vinsælu Spectrum felgur en báðar fara vel við ásýnd bílsins.