Your browser does not support this object. Please install Flash Player plugin from http://www.adobe.com.

Vernd og öryggi farþeganna, ásamt meðvitaðri ábyrð gagnvart öðrum vegfarendum, er ein af höfuðskyldum við hönnun nýrrar bifreiðar.

Það var haft að markmiði með framleiðslu Škoda Yeti  að hann kæmist í hæsta flokk í krefjandi öryggisprófum. Yeti hefur því sett ný viðmið, ekki bara fyrir háan öryggisstaðal, heldur einnig fyrir víðtæka notkun á nýjustu tækni.

Sem tæknilega fyrirbyggjandi öryggisbúnaður eru bi-xenon aðalljóskerin afar mikilvæg.  Þau eru með innbyggðum beygjubúnaði, tengdum stefnu framhjólanna og lýsa þannig upp hindrun, sem áður gat leynst í beygju á veginum. Þokulugtirnar að framan eru sömuleiðis áríðandi öryggisbúnaður Ten þær eru sambyggðar dagsljóskerunum í kringlóttum ramma.

Yfirgripsmikill rafstýrður búnaður er einnig hluti af fyrirbyggjandi öryggi svo sem hemlalæsivörn, læst mismunadrif, stöðugleikastýring, spólvörn, spyrnustjórnun og hemlar með hjálparafli. Til að minnka hættu á að ekið verði aftan á bílinn, ef nauðhemlað er í þéttri umferð, blikka hemlaljósin sjálfvirkt og hættuljósin kvikna einnig sjálfkrafa eftir að bíllinn hefur stöðvast.

 

Ef umferðarslys verður ekki umflúið, sér hinn meðvirki öryggisbúnaður um að vernda farþegana gegn líkamsáverkum. Í fyrsta lagi er yfirbyggingin með afbrigðum sterkbyggð, sérstaklega hurðastafir og burðarvirki. Í öðru lagi eru svo öryggisfestingar fyrir vél og fetla, ásamt allt að níu öryggispúðum fyrir farþega í fram- og aftursætum, þar með taldir hnépúðar fyrir þá, sem eru í framsætum.

Þegar öryggispúðarnir blása upp, rofnar rafstraumur sjálfvirkt til eldsneytisdælu og fleiri notenda, sem dregur úr hættu á að eldur kvikni, hurðalæsingar opnast og inniljós kvikna. Aðrir vegfaraneur eru jafntframt varaðir við með því að hættuljós bílsins blikka sjálfkrafa. 


Aldrifsbúnaður
Yeti er fyrsti bíllinn sem Škoda býður með aldrifi (4x4), sem er tæknibúnaður, hannaður af mikilli hugvitssemi. Hér er aflrásinni og vinnukerfum hemlanna beitt sameiginlega til að auðvelda akstur á lausu eða hálu yfirborði vegar og í miklum bratta. Aldrifsbúnaðinum fylgja eftirfarandi virkniþættir:

Brekkustoð

Þessi hjálparbúnaður heldur sjálfkrafa jöfnum snúningshraða á öllum veghjólum bílsins, þegar ekið er niður mikinn bratta, þannig að hann skrikar ekki til hliðanna, en það gæti endað með veltu. Ökumaður getur því einbeitt sér að því að stýra bílnum niður á jafnsléttu.

Læsivarðir hemlar

Þegar bílnum er ekið í aldrifi er hemlalæsivörnin samræmd annarri virkni aflrásarinar og þannig nýtast kostir þessarar undaverðu hemlunartækni til fulls.

Spólvörn og læst mismunadrif

Á lausu eða hálu yfirborði vegar vinna spólvörnin og rafstýrð læsing á mismunadrifi sameiginlega að því að veghjól bílsins nái betri viðspyrnu.

Af stað með eftirvagn

Um er að ræða sjálfvirkan búnað sem auðveldar ökumanni að koma bílnum af stað við erfiðar aðstæður eins og í brattri brekku, í hálku og með þungan eftirvagn. Þá gefur ökumaður fulla eldsneytisgjöf, en búnaðurinn takmarkar snúningshraða hreyfilsins við 2500 sn./mín.