Það ætti enginn að aka á vetrardekkjum þegar lofthiti er yfir 7 gráðum á Celsius. Vetrardekk eru gerð úr mýkri gúmmíblöndu en sumardekk og slitna hraðar við hærra hitastig. Hagkvæmast er að hafa sumardekkin á felgum í stað þess að umfelga öllum dekkjunum við árstíðaskipti.
Þannig er dregið úr þeirri hættu að dekkin skemmist. Umgang af dekkjum á felgum er hægt að geyma hjá viðurkenndum þjónustuaðila Skoda í samræmi við reglur framleiðandans. Athugaðu ástand hjólbarðanna og felgnanna við árstíðaskipti, hvort þeir séu jafnvægisstilltir og hvort réttur loftþrýstingur sé í þeim. Dýpt mynstursins í dekkjunum er mikilvæg. Lög kveða á um að mynstursdýpt skuli vera 1,6 mm hið minnsta en sérfræðingar eru þó sammála um að hún ætti að vera að minnsta kosti 4 mm.