Ábyrgð fellur úr gildi að fullu:
- Ef gert hefur verið við bifreiðina á ábyrgðartímanum af aðila, sem er ekki viðurkenndur af HEKLU.
- Ef notaðir hafa verið varahlutir í bifreiðina á ábyrgðartímanum, sem ekki eru viðurkenndir af HEKLU.
- Ef fyrirmælum framleiðanda bifreiðarinnar í eigendahandbók og þjónustuhandbók um notkun bifreiðarinnar og kerfisbundna þjónustu hefur ekki verið fylgt.
- Ef bifreiðinni hefur í einhverju verið breytt frá upprunalegu ástandi og rekja má meintan galla til þeirrar breytingar.
- Ef bifreiðin hefur orðið fyrir tjóni og/eða hefur verið skráð sem tjónabifreið.