Öryggisaðstoðarkerfi Škoda Epiq
Front Assist með Collision Avoidance Assist
Front Assist er öryggiskerfi sem varar við árekstri. Ef árekstur er óumflýjanlegur beitir kerfið hemlum til að lágmarka afleiðingarnar. Það framkvæmir einnig neyðarstöðvun ef gangandi vegfarandi eða hjólreiðamaður fer skyndilega inn á akstursleið bílsins.
Kerfið greinir jafnframt gangandi vegfarendur og hjólreiðamenn sem eru á ferð í sömu átt og bíllinn og beitir gagnvart þeim sömu viðvörunar- og hemlunaraðgerðum og gagnvart ökutækjum sem eru á undan.
Í neyðaraðstæðum, þegar Front Assist grípur inn með hemlun og ökumaður gefur til kynna undankomutilburði með stýrishreyfingum, kemur Collision Avoidance Assist til aðstoðar með markvissum stýrisinngripum sem hjálpa til við að aka fram hjá hindruninni.
Öryggisaðstoðarkerfi Škoda Epiq
Crossroad Assist
Crossroad Assist aðstoðar þegar ekið er hægt út á gatnamót með takmarkaða yfirsýn. Með hjálp ratsjárskynjara sem eru innbyggðir í hornum stuðarans styður kerfið við ökumann þegar ekið er inn á blind gatnamót og getur varað við ökutækjum eða hjólreiðamönnum sem nálgast, þannig að hægt er að aka af stað með meiri öryggi og sjálfstraust.
Öryggisaðstoðarkerfi Škoda Epiq
Turn Assist
Turn Assist, sem er hluti af Front Assist, er hannað til að fylgjast með ökutækjum sem koma á móti þegar beygt er til vinstri, til dæmis á gatnamótum. Ef yfirvofandi hætta skapast stöðvar kerfið bílinn alveg og virkjar viðvörun til að vara ökumann við.
Öryggisaðstoðarkerfi Škoda Epiq
Side Assist
Með hjálp ratsjárskynjara aftan á bílnum greinir Side Assist ökutæki sem nálgast aftan frá eða eru á blindsvæði bílsins. Ökumaður er látinn vita af því með LED-ljósmerki á innri hlið speglahúsa hliðarspeglanna. Side Assist getur greint ökutæki í allt að 70 metra fjarlægð og varar þannig á áhrifaríkan hátt við hættulegum aðstæðum, sérstaklega á hraðbrautum og tvöföldum akreinum.
Öryggisaðstoðarkerfi Škoda Epiq
Exit Warning
Þessi öryggisbúnaður er ein af viðbótaraðgerðum Side Assist. Exit Warning varar ökumann og aðra farþega sjónrænt og hljóðrænt þegar þeir eru til dæmis að stíga út úr samsíða lagtum bíl, ef opnun hurðar gæti leitt til áreksturs við annað ökutæki, hjólreiðamann, rafhlaupahjól eða skokkara. Exit Warning nýtir aftari ratsjár Side Assist og fylgist með svæðinu aftan við bílinn og meðfram hliðum hans, allt að 40 metra fjarlægð, til að auka öryggi við útgöngu úr bílnum.
Öryggisaðstoðarkerfi Škoda Epiq
Crew Protect Assist
Kerfið forstrekkir öryggisbelti í framsætum þegar yfirvofandi árekstur er í vændum eða við óstöðugar akstursaðstæður. Jafnframt vinnur það með ESC stöðugleikakerfinu að því að loka hliðarrúðum nánast alveg, til að koma í veg fyrir að aðskotahlutir komist inn í farþegarýmið. Kerfið nýtir ratsjár bæði að framan og aftan til að greina aðstæður og bregðast tímanlega við.
Öryggisaðstoðarkerfi Škoda Epiq
Multi-Collision Brake
Ef Škoda Epiq lendir í árekstri og loftpúðar virkjast getur bíllinn í sumum tilfellum haldið áfram að hreyfast og þannig valdið frekari slysum. Þar kemur Multi‑Collision Brake til sögunnar: kerfið stöðvar bílinn sjálfkrafa til að koma í veg fyrir keðjuárekstur og draga úr líkum á frekari tjóni.
Öryggisaðstoðarkerfi Škoda Epiq
Driver alert system með driver monitoring
Þreyta ökumanns eða athyglisbrestur eru oft orsök hættulegra aðstæðna í umferðinni. Ökumannsvöktunarkerfið með Driver Alert hjálpar til við að koma í veg fyrir slíkt með því að greina aksturshegðun ökumanns frá upphafi ferðar og meta þreytu- og einbeitingarstig. Með beinni vöktun ökumanns í gegnum innri myndavél varar kerfið við ef það greinir minnkandi einbeitingu eða ef ökumaður þarf að taka sér hlé, og stuðlar þannig að auknu öryggi í akstri.