Fyrirtækjasala

Fyrirtækjaþjónusta HEKLU sérhæfir sig í heildarlausnum í bílamálum fyrirtækja og býr að áratuga reynslu í sölu, rekstri og þjónustu bifreiða. Vöruframboð HEKLU er einstaklega breitt og spannar allt frá rafdrifnum smábílum upp í vistvæna sendibíla. HEKLA býður alla almenna bílaþjónustu undir einu þaki og leggur höfuðáherslu á framúrskarandi þjónustu. Fyrirtækjaþjónusta HEKLU gerir fyrirtækjum kleift að gera bílaviðskipti sín á einum og sama staðnum og láta sérfræðingana sjá um málin. Fimm ára ábyrgð fylgir öllum nýjum fólksbílum frá HEKLU og tveggja ára ábyrgð er á Volkswagen atvinnubílum.