Nýja alrafmagnaða flaggskipið okkar er komið til að endurskilgreina hvað nútímalegur Škoda getur verið. Nýr Škoda Peaq sameinar djarfa Modern Solid hönnun, rými fyrir allt að sjö fullorðna og drægni yfir 600 kílómetra í stærsta bílnum okkar til þessa – markar þannig upphaf nýs kafla í rafknúnum ferðamáta fyrir daglega landkönnuði.
Hvað er það sem aðgreinir Peaq frá öðrum
Farðu lengra með fullu öryggi
Segðu skilið við drægnikvíða. Með þremur aflrásarútfærslum og glæsilegri drægni yfir 600 km er Peaq hannaður fyrir öryggi í langkeyrslu. Þegar tími er kominn til að hlaða tekur DC-hraðhleðsla rafhlöðuna úr 10% í 80% á aðeins 28 mínútum. Meiri tími til að kanna, minni tími í bið.
Rými fyrir öll ævintýrin
Sem stærsti Škoda bíllinn frá upphafi býður Peaq upp á einstakan sveigjanleika með fimm eða sjö sætum. Þarftu pláss fyrir búnað? Fimm sæta útgáfan státar af stóru 935 lítra farangursrými, því stærsta í núverandi Škoda-línu og er því fullkominn félagi í ferðum fjölskyldunnar.
Lúxus og þægindi á hjólum
Vertu velkomin í heim þæginda. Nýi Relax‑búnaðarpakkinn okkar felur í sér ergonomic nuddsæti og fótaskammel til að hámarka þægindi á ferðalagi. Í bland við magnaða 3D‑hljóðupplifun frá Sonos umbreytir Peaq hverri ferð í lúxussetustofu á hjólum.
Himininn innan seilingar
Meira ljós, meiri stemning, meira „vá“. Peaq er búinn stærsta panorama‑glerþaki sem nokkru sinni hefur verið sett í Škoda, með nýstárlegri Dynamic Shade Control tækni og níu stillanlegum svæðum sem gera þér kleift að móta birtuna nákvæmlega eftir þínum höfði.
Tækni sniðin að þér
Peaq er búinn notendavænum 13,6 tommu lóðréttum snertiskjá. Augmented-reality-sjónlínuskjár heldur helstu upplýsingum alltaf í sjónlínu. Með nýjum Digital Key geturðu opnað bílinn og ræst hann með snjallsímanum eða snjallúrinu þínu.
Kraftur sem nær lengra en vegurinn
Tilbúinn að knýja meira en bara aksturinn. Með Vehicle‑to‑Load getur Peaq veitt orku til annara tækja eins og rafhjóla eða hjólhýsa og er því hagnýtur félagi fyrir helgarferðir, dagleg ævintýri og lífið handan vegarins.
Útlit sem krefst athygli
Hannaður til að vekja athygli strax við fyrstu sýn. Með nærri 4,9 metra lengd og 2.965 mm hjólhaf er Škoda Peaq stærsta módelið okkar til þessa. Nútímaleg Modern Solid hönnun, upplýst Tech‑Deck Face, LED Matrix‑ljós og allt að 21 tommu álfelgur tryggja flaggskipinu kraftmikla og sjálfsörugga nærveru á veginum.
Innra rými sem mætir þínum þörfum
Rými, þægindi og sveigjanleiki einkenna innréttingu Škoda Peaq. Með fimm eða sjö sætum tryggir 3 metra hjólhaf ríkulegt fótarými, jafnvel í þriðju sætaröð. Allt að 935 lítra farangursrými, 37 lítra frunk, stemningslýsing og upphitað fjölnota stýri sameinast í farþegarými sem sameinar hagnýta notkun og ígrundaða hönnun, með efnisvalkostum án dýraafurða.